Skoda dagurinn laugardaginn 20. maí

Fréttir

Skoda dagurinn laugardaginn 20. maí

d.m.Y 2017

Næstkomandi laugardag 20. maí verður Skoda dagurinn haldinn hátíðlegur á bílasölu Hölds milli klukkan 12 og 16 . Auk nýrra bíla verður boðið upp á grillaðar pylsur og svaladrykki milli kl. 12 og 14 .Margt verður um að vera og helst ber að nefna frumsýningar á nýrri og uppfærðri Skoda Octaviu ásamt sportjeppanum Skoda Kodiaq.

Skoda Octavia er einn mest seldi bíll á Íslandi. Nýi bíllinn hefur fengið andlitslyftingu og er mikið uppfærður. Hönnunin er enn fágaðri og framsæknari en áður og ný LED dag- og afturljós skína skært. Ný Octavia er einstaklega rúmgóð með allt að 610 lítra farangursrými sem hægt er að stækka í 1.740 lítra. Hún kemur með ótal nýjum tæknimöguleikum eins og nýju upplýsinga- og afþreyingarkerfi með allt að 9,2 tommu skjá og þráðlausri snjallsímahleðslu. Meðal staðalbúnaðar í nýju útgáfunni er leðurklætt aðgerðastýri, LED afturljós og bakkmyndavél. Úrval aukabúnaðar er í boði á borð við tengivagnsaðstoð, fjarlægðatengdan hraðastilli og blindsvæðagreini. Þrjár gerðir véla eru fáanlegar; 1,4 lítra metan- og bensínvél og 1,6 og 2,0 lítra dísilvélar.

Skoda Kodiaq er fyrsti jeppi framleiðandans í fullri stærð. Um er að ræða fjölnota jeppa sem þykir státa af kraftmikilli hönnun og hann hefur einnig hlotið lof fyrir tengibúnað og nýsköpun í tæknilausnum. Kodiaq er í boði fimm og sjö manna, hann er 4,75 metrar á lengd og með stærsta farangursrýmið í sínum flokki. Í boði eru bæði 1.4 lítra bensínvélar og 2.0 lítra dísilvélar.

Octavia er einn söluhæsti bíllinn á Íslandi og eftir uppfærsluna verður hann eflaust enn vinsælli. Kodiaq jeppinn er nýjasta útspilið frá Skoda og gefur forsmekkinn af því sem koma skal en Skoda hyggst auka úrvalið á sportjeppamarkaði til muna á næstu misserum.