Bættu nýju ljósi í skammdegið

Fréttir

Bættu nýju ljósi í skammdegið

d.m.Y 2021

Við náðum inn sendingu til að þú getir fullnýtt niðurfellingu virðisaukaskatts fyrir áramót. Bættu nýju ljósi í skammdegið strax í dag og fáðu þér nýjan tengiltvinnbíl á frábæru verði frá aðeins 5.490.000 kr. til afhendingar strax.

Þú sparar 960.000 kr. ef þú tryggir þér bíl fyrir áramót!

Samkvæmt lögum munu ívilnanir stjórnvalda falla að fullu niður á nýju ári og tengiltvinnbílar því hækka í verði um áramótin. Núverandi ívilnanir eru í formi niðurfellingar á virðisaukaskatti um 960.000 kr. af hverjum bíl. Að öllu óbreyttu mun sú upphæð leggjast við kaupverð á Eclipse Cross árið 2022.

Í desember fylgir jólapakki með bílnum sem inniheldur vetrardekk, gúmmímottur, mottu í skott og aurhlífar!

Eclipse Cross PHEV tekur þig allt að 45 kílómetra skv. WLP á rafmagninu eingöngu og með 2,4 lítra sparneytinni bensínvél og 13,8 KWst rafhlöðu kemst þú allt að 600 kílómetra á tankinum. Auk þess nýtir rafhlaðan hreyfirorku með endurnýjunarhemlun og hleður við hemlun og þegar ekið er niður á við. Þetta gerir þér kleift að fara í langan akstur og slaka á, án þess að hugsa um hleðslu eða næstu bensínstöð. Þú átt yndislegan akstur fram undan.