Gjafabréf í bón og bílaþvott

 

Við bjóðum tvær tegundir gjafabréfa sem gilda í bón- og bílaþvottastöð okkar við Glerártorg. Gjafabréfin afhendast í gjafaöskju og eru tilvalin tækifærisgjöf sem er ávallt vís til að gleðja bíleigandann.

Hægt er að nálgast gjafabréf í afgreiðslu dekkjaverkstæðisins að Gleráreyrum 4, opið er frá 8-17 alla virka daga. Síminn er 461 6050

 

 

 

Gjafabréf í plúsþvott

Þrif að utan: Tjöruhreinsun, háþrýstiþvottur, sápuþvottur, bónhúðun og þurrkun í bílaþvottavél.

Fólksbílar - kr. 6.000
Jepplingar - kr. 7.000
Jeppar - kr. 8.000

 

Gjafabréf í alþrif og bón

Þrif að utan: Tjöruhreinsun, sápuþvottur, þurrkun og hágæða bón.
Þrif að innan: Ryksugun, þrif á mottum, innréttingu og gleri, þurrkað úr hurðafölsum.

Fólksbílar - kr. 19.500
Jepplingar - kr. 21.500
Jeppar - kr. 24.500
Stórir jeppar/pallbílar og sendibílar - kr. 28.500